Bodyzone er netverslun sem selur fatnað og fæðubótaefni.

Bodyzone ehf.

Bæjarlind 6, 201 Kópavogur

Vsk nr. 125954

Uppýsingar um fæðubótaefni fást í síma: 780­1447

Upplýsingar um fatnað fást í síma: 7702436

bodyzone@bodyzone.is

Afgreiðsla

Öllum pöntunum er dreift í gegnum Íslandspóst og eru því afhendingar­, ábyrgðar og

flutningsskilmálar þeirra um afhendingu vörunnar í gildi. Samkvæmt því ber Bodyzone.is

enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í fluttningi. Ef vara

týnist eða verður fyrir tjóni eftir að hún er send frá Bodyzone.is er tjónið á ábyrgð

kaupanda.

Almennur afhendingatími er um 1­3 virkir dagar eftir að pöntun hefur verið póstlögð.

Ef verslað er fyrir 15.000 eða meira býður Bodyzone.is upp á fría heimsendingu.

Bodyzone.is reynir að afgreiða allar pantanir eins fljótt og auðið er en áskilur sér rétt til

þess að taka allt að 1 virkan dag í afgreiðslu pöntunar. Ef vara er ekki til á lager mun

þjónustufulltrúi hafa samband um tilkynna áætlaðan afhendingatíma.

Skilaréttur

Viðskiptavinir geta fengið vörur endurgreiddar að fullu ef þeim er skilað í upprunalegu

ástandi og umbúðum innan 14 daga frá afhendingu ásamt sölureikningi. Ef vara er

innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar,

nema vara sé á útsölu eða sértilboði.

Ef að þú þarft að skila vöru sem þú keyptir hjá okkur er best að hafa samband í gegnum

netfangið bodyzone@bodyzone.is.

Sendingakostnaður vöru er ekki endurgreiddur og eru endursendar vörur á ábyrgð og

kostnað kaupanda nema um sé að ræða að ranga eða gallaða vöru. Ef um gallaða vöru

er að ræða býður Bodyzone.is viðskipta vinum sínum nýja vöru eða endurgreiðir vöruna

ef þess er óskað. Bodyzone endurgreiðir einnig allan sendingakostnað sem um ræðir.

Skilmálar

Bodyzone.is áskilur sér rétt til þess að hætta við pantanir t.d. vegna rangra

verðupplýsinga, einnig til þess að breyta verðum eða hætta með vöru fyrirvaralaust.

Bodyzone.is afgreiðir aðeins vörur sem hafa verið greiddar ef hætt er við pöntun

endurgreiðist upphæð pöntunar að fullu til viðskiptavinar. Ef skilmálum fyrirtækisins er

ekki mætt áskilur Bodyzone sér rétt til þess að neita viðskiptum.

Öryggisskilmálar

Bodyzone.is heitir kaupendum sínum fullum trúnaði og allar upplýsingar sem gefnar eru

upp verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Greiðsla

Þegar gengið er frá pöntun er hægt að velja um að greiða með millifærslu, debet­ eða

kreditkorti.

Ef greitt er með millifærslu þarf að klára að millifæra heildarupphæð pöntunar innan

klukkustundar frá staðfestingu pöntunar annars fellur hún úr niður. Við greiðslu skal setja í

skýringu númer pöntunar.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekja fyrir

Héraðsdómi Hafnafjarðar.

Hafðu samband

Heimilisfang Bæjarlind 6, 201 Kópavogur

Opnunartími 12:00 – ­18:00

Uppýsingar um fæðubótaefni fást í síma: 780­1447

Upplýsingar um fatnað fást í síma: 7702436

bodyzone@bodyzone.is